Stefnt er að því að malbika Hafnarfjarðarveg frá beygjugrein upp á Bústaðaveg að gatnamótum Kringlumýrabrautar og Miklubrautar annað kvöld ef veður leyfir, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Þrengt verður í eina akrein en beygjureinar upp á og niður af Bústaðavegi verður lokað. Listabraut verður jafnframt lokuð við gatnamót að Kringlu og lokað verður fyrir vinstri beygju frá Kringlumýrabraut inn á Listabraut.
Áætlað er að framkvæmdir standi frá kl. 19.00 til kl. 05.00.
Einnig er stefnt að því að fræsa Hafnarfjarðarveg frá beygjugrein við Bústaðaveg í átt að Hamraborg. Hafnarfjarðarvegi verður lokað til suðurs við Bústaðaveg og umferð beint um hjáleið upp á Bústaðaveg.
Áætlað er að framkvæmdir standi frá kl. 19.00 til kl. 04.00.