Rannsókn er lokið á atviki sem átti sér stað á skemmtistaðnum The Dubliner í mars, þegar maður hleypti af skoti inni á staðnum. Málið er nú komið til héraðssaksóknara.
Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í svari við fyrirspurn mbl.is.
Maðurinn sem grunaður var um að hafa hleypt af skotinu er því enn í varðhaldi, sem var framlengt þann 6. júní. Hann hefur setið varðhald frá 13. mars og hefur það verið framlengt þrívegis síðan þá.