Fjölmennt lið björgunarsveita hefur verið kallað til Köldukvíslar eftir að tilkynning barst um bráðaveikindi konu sem var að ganga Laugaveginn fyrr í dag. Enn hefur ekki náðst til konunnar.
Sveitirnar fóru af stað fyrir rúmum tveimur klukkustundum síðan og eru enn á leið til konunnar.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir upplýsingar um eðli og alvarleika veikinda konunnar ekki liggja fyrir að svo stöddu.