Svona verða nýju brýrnar yfir Elliðaár

Hér má sjá mynd af fyrirhugaðri Stokksbrú.
Hér má sjá mynd af fyrirhugaðri Stokksbrú. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Hönnun nýrra göngu- og hjólabrúa yfir Elliðaár var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun. Brúnum er ætlað að setja skemmtilegan svip á dalinn og auka notagildi hans. 

Annars vegar voru kynntar brýr sem munu koma í stað gamla hitaveitustokksins neðarlega í Elliðaárdal og hins vegar var boðuð bygging nýrrar göngu-og hjólabrúar yfir Elliðaár við Grænugróf í Víðidal. 

Sóttu innblástur í sögu veitna í Elliðaárdal

Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að innblásturinn að hönnuninni hafi verið sóttur til mikillar sögu veitna í dalnum, en hönnunin brúnna er í höndum teiknistofunnar Stiku, hönnunarhópsins Tertu, VBV verkfræðistofu og Lisku. 

 „Saga Elliðaárdalsins er samtvinnuð sögu rafmagnsveitu, hitaveitu og vatnsveitu í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni, en þar kemur fram að í brúnum sem á að byggja verði annars vegar rauð rör með tilvísun í hitaveitu og blá rör sem vísa til vatnsveitunnar. 

Göngubrýr taka við af hitaveitustokknum

Tvær göngubrýr, göngustígur og áningastaður í hólmanum koma í stað gömlu leiðarinnar yfir hitaveitustokkinn sem áður lá yfir árnar á þessum stað. Nú er búið að rífa stokkinn og verða stöplarnir sem standa eftir nýttir í undirstöður undir brýrnar, sem verða 3,5 metrar á breidd.

Rauð rör munu ganga eftir brúnni og aðlaga sig að þörfum hennar ásamt því að sveigjast og breytast í ljós, útskot og fleira. Ljósin verða útbúin skynjurum sem valda því að lýsingin eykst þegar farið er um gönguleiðina. 

Þá verða rörin einnig notuð við gerð leiksvæðis, til dæmis í hringlaga formum sem byggja á algengri gerð heitra potta í sundlaugum Reykjavíkur. 

Göngu- og hjólabrú við Grænugróf í Víðidal

Göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár við Grænugróf verður breið, 6,5 metrar, en á hana setja 10 sentímetra blá rör svip sinn en þau mynda samhverf handrið, sem sveigjast á hliðum brúarinnar. Þarna er vísað í kalda vatnið og vatnsveituna. Brúin tengist inn á stígakerfi Reykjavíkurborgar og höfuðborgarsvæðisins alls og verður mikið lagt í lýsingarhönnun hennar.

Hér sést fyrirhuguð göngu-og hjólabrú við Grænugróf í Víðidal.
Hér sést fyrirhuguð göngu-og hjólabrú við Grænugróf í Víðidal. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Gerð göngu- og hjólabrúarinnar við Grænugróf er hluti verkefna Samgöngusáttmálans, sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið er meðal annars að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.

Framkvæmdir hefjast í haust

Framkvæmdirnar fara af stað í haust með undirbúningi, en besti framkvæmdatíminn á þessu svæði er vetrartíminn þar sem mikilvægt er að tekið sé tillit til lífríkis ánna.

Búist er við því að framkvæmdir standi fram yfir á næsta ár, en á sama tíma er gert ráð fyrir því að fram fari framkvæmdir við enn aðra nýja brú, sem kennd hefur verið við Dimmu, efst í Víðidal við Breiðholtsbraut. 

Sú brú mun koma í stað veitustokks sem nýttur hefur verið sem göngubrú og hefur lengi verið farartálmi á leið gangandi og hjólandi vegfarenda um dalinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert