Fjölga hólmunum í Tjörninni

Fjölga á hólmunum í Tjörninni.
Fjölga á hólmunum í Tjörninni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Reykjavíkurborg ætlar að fjölga hólmunum í Tjörninni. Verður það gert til hagsbóta fyrir fuglalífið. 

Ástæða þess að ráðist verður í þessar framkvæmdir er að hólmarnir sem þegar eru til staðar eru báðir undirlagðir hvönn og nýtast fuglalífinu illa til varps eða dvala. 

Auk þess hefur stóri hólminn minnkað vegna rofs. Hugmyndir að lagfæringum og fjölgun hólmanna voru kynntar í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í vikunni.

Áætlað er að laga rofið í stóra hólmanum og skipta um jarðveg í honum. Varðandi litla hólmann kom sú hugmynd að ekki aðeins skipta um jarðveg heldur frekar fjölga hólmum. Verkefnið er enn á undirbúningsstigi en hugmyndin sem nú verður unnið með áfram er að gera þyrpingu af hólmum sem myndi nýtast fuglalífinu betur.

Hér má sjá hvernig hólmarnir eiga að verða.
Hér má sjá hvernig hólmarnir eiga að verða. Kort/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert