Knapa vikið úr landsliðshópi

Knapanum var vikið úr landsliðshópi vegna brota á aga- og …
Knapanum var vikið úr landsliðshópi vegna brota á aga- og siðareglum landsliðsnefndar. mbl.is/Sigurður Bogi

Landsliðsnefnd og landsliðsþjálfari LH hafa tekið ákvörðun um að víkja Konráði Vali Sveinssyni A-landsliðknapa úr landsliðshópi LH 2023.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landssambands Hestamannafélaga.

Þar kemur jafnframt fram að brottvikningin sé vegna brota á aga- og siðareglum landsliðsnefndar. 

Á vef LH segir að Konráð sé margfaldur Íslandsmeistari í skeiðgreinum og heimsmethafi í 250 metra skeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert