Arna Kristín Einarsdóttir hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra menningar og fjölmiðla í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Arna Kristín var valin úr hópi 18 umsækjenda um starfið, en tveir drógu umsóknir sínar til baka. Arna Kristín var valin í embættið að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd og tekur við embættinu í haust.
Arna Kristín lauk meistaranámi í flautuleik (Professional Performance) frá Indiana University í Bandaríkjunum árið 1992, diplóma á meistarastigi í flautuleik frá Royal College of Music í Manchester á Englandi árið 1996, MA gráðu í menningar- og menntastjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2007 og diplóma í samningatækni og sáttamiðlun frá sama skóla árið 2017.
Arna Kristín starfar sem dagskrár- og skipulagsstjóri við Sinfóníuhljómsveit og tónlistarhús Gautaborgar, þjóðarhljómsveit Svíþjóðar. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri þjóðarhljómsveitar Kanada í Ottawa frá 2019-2022. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ) á árunum 2013-2019 og sem tónleikastjóri SÍ á árunum 2007-2013.