Ísland í fyrsta flokki annað árið í röð

Ísland er í fyrsta flokki.
Ísland er í fyrsta flokki. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ísland er annað árið í röð í fyrsta flokki í nýjustu skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal.

Árlega gefa bandarísk stjórnvöld út svokallaða TIP-skýrslu (Trafficking in Persons) til að bera saman mismunandi aðstæður varðandi mansal í ríkjum heims, að því er segir í tilkynningu.

Ríkjunum er raðað í fjóra flokka eftir því hvernig ríkin standa sig í baráttunni gegn mansali að mati bandarískra utanríkisráðuneytisins.  Skýrslan byggir á  úttekt bandarískra stjórnvalda á öðrum ríkjum þar sem leitað er upplýsinga hjá félagasamtökum, einstaklingum, á vefnum og á svörum frá tilteknum stjórnvöldum. Íslensk stjórnvöld fá skýrsluna ekki til umsagnar áður en hún er birt.

Ísland er nú annað árið í röð í fyrsta flokki og telur bandaríska utanríkisráðuneytið íslensk stjórnvöld þannig uppfylla að öllu leyti lágmarkskröfur þeirra til aðgerða til útrýmingar á mansali í heiminum.

Í skýrslunni segir að íslensk yfirvöld hafi sýnt viðvarandi viðleitni á tímabilinu til að sporna við mansali. Fleiri mál hafi verið rannsökuð og fleiri fórnarlömb fundist. Þá hafi verið komið á fót starfshópum þar sem hagsmunaaðilar frá Norðurlöndum efla samstarf og samræma vinnubrögð í þessum málaflokki.

Við komu flóttafólks frá Úkraínu á síðasta ári brugðust yfirvöld við með að dreifa miðum með upplýsingum um hættuna af tengslum fjöldaflótta og mansals, á ensku rússnesku og úkraínsku, að því er kemur fram í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka