Keppendur Special Olympics í heimsókn á Bessastöðum

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Eliza Reid forsetafrú efndu til móttöku á Bessastöðum fyrir keppendur Íslands í heimsleikum Special Olympics 2023.

Tveir keppendur unnu til gullverðlauna á leikunum, sem fóru fram í Berlín, en það voru sundkapparnir Katla Sif Ægisdóttir og Benjamín Lúkas Snorrason.

Forsetafrúin var viðstödd leikana ásamt Ásmundi Einari Daðasyni barnamálaráðherra og tóku þau þátt í opnunarathöfn þeirra og hvöttu íslensku keppendurna til dáða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka