Stærsti skjálfti ársins á Reykjanesskaga

Skjálftinn varð undir Kleifarvatni.
Skjálftinn varð undir Kleifarvatni. Kort/map.is

Jarðskjálfti reið yfir undir Kleifarvatni nú á tíunda tímanum. Mælingar Veðurstofunnar sýna að skjálftinn var 3,2 að stærð, en hann varð klukkan 9.21.

Reynist mælingarnar réttar er um að ræða stærsta skjálftann sem orðið hefur á Reykjanesskaga það sem af er ári.

Veðurstofunni hafa borist nokkrar tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist á höfuðborgarsvæðinu.

Að minnsta kosti tíu smærri skjálftar hafa mælst á svæðinu í kjölfarið.

Skjálftahrinur hafa orðið við vatnið á undanförnum mánuðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert