Borgin riftir samningi við Vesturbugt

Teikningar að Vesturbugt við Gömlu höfnina
Teikningar að Vesturbugt við Gömlu höfnina Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg hefur rift samningi um uppbyggingu í Vesturbugt vegna vanefnda lóðarhafans að efna samninginn. Áformað er að bjóða lóðirnar út að nýju í haust.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Samningur borgarinnar og Vesturbugtar ehf. um uppbyggingu á tveimur lóðum í Vesturbugt við gömlu höfnina í Reykjavík var undirritaður árið 2017.

Í honum fólst fyrst og fremst að Reykjavíkurborg seldi félaginu byggingarrétt á götunum Hlésgötu 1 og Hlésgötu 2.

Heimilað var í samræmi við deiliskipulag að byggja allt að 18.400 fermetra húsnæði ofanjarðar auk bílakjallara og geymslna. Miðað var við að íbúðir yrðu allt að 176 og atvinnuhúsnæði um 1.665 fermetrar.

Umsamdir frestir til uppbyggingar liðnir

Vesturbugt ehf. bauð í tilboði sínu að greiða fyrir lóðirnar og byggingarréttinn með því að afhenda borginni kvaðalaust um 74 íbúðir í húsunum og 170 bílastæði í bílakjallara.

Í tilkynningunni er greint frá að félagið hafi ekki hafið framkvæmdir og séu allir umsamdir frestir þess til að byggja á lóðunum liðnir.

Lóðirnar boðnar út að nýju í haust

Vegna vanefnda félagsins hefur Reykjavíkurborg rift samningnum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu á lóðunum og afturkallað úthlutun til félagsins á lóðinni Hlésgötu 1.

Lítilsháttar endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir Vesturbugt er nú í undirbúningi og áformar Reykjavík að lóðirnar verði boðnar út að nýju í haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert