Hellisheiðarvirkjun brátt sporlaus

Framkvæmdir við byggingu Steingerðar hófust í dag.
Framkvæmdir við byggingu Steingerðar hófust í dag. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta skóflustungan að hreinsistöðinni Steingerði við Hellisheiðarvirkjun var tekin í dag en með tilkomu hennar tekst að fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni frá virkjuninni.

Framkvæmdir hófust í dag þegar þau Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, og Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku Náttúrunnar, tóku fyrstu skóflustunguna að hreinsistöðinni.

Stefnt er að gangsetningu Steingerðar árið 2025 og verður Hellisheiðarvirkjun þar með nær sporlaus, fyrst jarðvarmavirkjana á heimsvísu.

Fangar 95% koldíoxíðs og brennisteinsvetnis

Núverandi hreinsistöð á Hellisheiði sem tekin var í gagnið árið 2014 fangar um 30% koldíoxíðs og 75% brennisteinsvetnis frá virkjuninni.

Stefna nú Carbfix og ON á að reisa öflugri hreinsistöð sem mun, ásamt núverandi hreinsistöð, fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar.

Í samtali mbl.is við talsmann ON, Breka Logason, kemur fram að ný hreinsistöð muni fanga 95% koldíoxíðs og brennisteinsvetnis.

Lausn að hamfarahlýnun jarðar

„Það er Orku náttúrunnar mikilvægt að vera hluti af lausninni gegn hamfarahlýnun jarðar. Það er því mikið ánægjuefni þegar Hellisheiðarvirkjun verður farin að framleiða nánast sporlaust og nýta jarðvarmann á sjálfbæran hátt,” er haft eftir Árna Hrannari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert