Almannavarnir virkja SMS

Skilaboðin gætu borist fólki aðeins utan svæðisins.
Skilaboðin gætu borist fólki aðeins utan svæðisins. mbl.is

SMS-skilaboð verða send til fólks sem fer inn á fyrir fram skilgreint svæði á Reykjanesskaga vegna jarðskjálftanna sem nú ríða yfir. Ákvörðun þessi var tekin af almannavörnum og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

„Er þetta gert bæði vegna grjóthruns á svæðinu og eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara. Komi til eldgos verður textaskilaboðum breytt í beina aðvörun til þeirra sem eru á umræddu svæði,“ að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum.

Almenningur er beðinn um að hafa í huga að skilaboðin geti borist til fólks sem er aðeins utan svæðisins sem um ræðir. Þá eru skilaboðin aðeins send á ensku til þess að reyna að miðla upplýsingunum til erlendra ferðamanna sem hafa minna aðgengi að upplýsingum.

Skilaboðin má sjá hér að neðan.

„Police: Reykjanes peninsula – earthquakes! Increased seismic activity in the area. Stay away from slopes and cliffs due to danger of rockfall and landslides.  A volcanic eruption might start with short notice.“

Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa ákveðið að virkja SMS-skilaboð sem verða send til fólks sem fer inn á fyrirfram skilgreint svæði á Reykjanesskaganum vegna jarðskjálftahrinurnar sem hófst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert