Opna leiðina upp að gosstöðvunum

Gosstöðvarnar.
Gosstöðvarnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Opnað hefur verið inn á svæðið við gosstöðvarnar frá Suðurstrandarvegi, leið sem kölluð er Meradalaleið. Ekki hefur verið opnað frá öðrum vegum eða vegslóðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Veðurstofa Íslands mun gefa út uppfært hættukort af svæðinu eftir klukkutíma eða svo. Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Gönguferðin hentar því alls ekki öllum, segir í tilkynningunni.

Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka.
Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka. Kort af svæðinu.

„Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar.  Hætta eykst þegar vind lægir.  Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar.  Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum,“ segir í tilkynningunni.

Eru göngumenn jafnframt hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka með nesti og hafa næga hleðslu á farsímum. 

Þá ítrekar lögreglan að akstur utan vega sé bannaður. Ferðamenn eru beðnir um að fara að fyrirmælum viðbragðsaðila og minnt er á að fjallið Keilir sé inn á merktu hættusvæði.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu:

Norðlæg átt, 5-10 m/s, 8-13 á morgun. Gasmengunin berst því til suðurs og gæti hennar orðið vart í m.a. Grindavík og á Suðurstandarvegi.
Mun hægari vindur um tíma í nótt. Gasmengun gæti dreifst víða kringum upptakasvæðið í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert