Auglýst er eftir landvörðum til starfa á gosstöðvunum á Reykjanesskaga á Facebook-síðu Umhverfisstofnunar.
Umsækjendur eru hvattir til þess að sækja um sem fyrst. „Fræðsla, eftirlit og náttúruvernd á einstöku svæði,“ segir um starfið.
Mikið álag hefur verið á björgunarsveitum á svæðinu en Otti Rafn Sigmarsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, kallaði eftir fljótu viðbragði hins opinbera við eldgosi, stuttu áður en fór að gjósa við Litla-Hrút.