Ungi ökumaðurinn látinn

Ungi maðurinn er látinn.
Ungi maðurinn er látinn.

Ökumaðurinn sem slasaðist við bílveltu á Þrengslavegi í morgun er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Ökumaðurinn var átján ára. 

Þá hafi maðurinn verið úrskurðaður látinn við komu á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. 

Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Tilkynning vegna slyssins barst lögreglunni klukkan 8.38 í morgun og var einn sjúkrabíll sendur á vettvang. Veginum var lokað um stund.

Tilkynninguna í heild sinni má sjá hér fyrir neðan. 

„Ökumaðurinn sem lenti í umferðarslysi á Þrengslavegi í morgun er bifreið hans fór út af veginum og valt þar nokkrar veltur, var úrskurðaður látinn við komu á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.

Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um umferðaslysið kl. 08:38 og var Þrengslavegi lokað um stund á meðan vinna á vettvangi stóð yfir. Rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.

Ökumaður var á 19. aldursári. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert