Alvarlegt umferðarslys varð í Þrengslunum og var mikill viðbúnaður á svæðinu. Um bílveltu var að ræða og barst tilkynning vegna þess til lögreglu klukkan 08.38 í morgun.
Uppfært klukkan 11.17
Einn sjúkrabíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var sendur á vettvang slyssins rétt fyrir klukkan 09 í morgun.
Þetta staðfestir Þorsteinn Gunnarsson, varðstjóri í aðgerðastjórn SHS, í samtali við mbl.is.
Frekari upplýsingar voru ekki fáanlegar.
Uppfært klukkan 11.24
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að viðbragðsaðilar séu nú að ljúka störfum á vettvangi. Um bílveltu hafi verið að ræða þar sem einn hafi verið í bílnum.
Þá hafi veginum verið lokað um stund en búið sé að opna hann aftur. Umferð á svæðinu sé þó stýrt af lögreglu og megi búast við einhverjum töfum.
„Tilkynning um slysið barst kl. 08:38 í morgun. Um er að ræða bílveltu og var ökumaðurinn einn í bílnum þegar slysið varð. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík. Lögregla ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa vinnur að rannsókn málsins,“ segir á vef lögreglunnar.