Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í gær 28 tonn af vatni að gosstöðvunum við Litla-Hrút til að slökkva gróðurelda sem brunnið hafa á svæðinu undanfarna daga. Til verksins notar Gæslan skjólu.
Skjólan tekur 2 tonn af vatni og fór þyrlan fjórtán ferðir í gær. Svæðinu var lokað í gærmorgun og til stendur að meta stöðuna klukkan 9 í fyrramálið.
Gunnar Örn Arnarson, stýrimaður Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við mbl.is að vel hafi gengið að nota skjóluna til að slökkva eldana sem brenna norðan við gosstöðvarnar.
Almannavarnir og slökkvilið berjast áfram við eldana í dag en Gunnar segir að ekki hafi verið óskað eftir aðstoð Gæslunnar í dag. Hans menn séu þó klárir ef kallið kemur.
Þyrlan hefur ekki sinnt útköllum vegna slysa á svæðinu í dag.