Þrívíddarlíkan af gosstöðvunum

Frá gosstöðvunum.
Frá gosstöðvunum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur birt fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu við Litla-Hrút á Reykjanesskaga. Með þrívíddarlíkönum má fylgjast með framvindu gossins, áætla rúmmál og þykkt hrauna, hraunrennsli og margt fleira.

Er líkanið unnið út frá ljósmyndum sem teknar voru úr lofti þann 13. júlí eða þremur dögum eftir að eldgosið hófst.  

Jarðfræðikortlagning með myndmælingatækni, þar sem teknar eru ljósmyndir úr lofti og myndirnar notaðar við gerð þrívíddarlíkana, nýttist vel við kortlagningu á bæði gossvæðinu í Geldingadal 2021 og Meradölum 2022.

Er þetta fyrsta myndgreiningarlíkanið af gosinu við Litla-Hrút en fleiri líkön eiga til með að bætast í safnið eftir því sem gosinu vindur fram.  

Eru líkön líkt og þetta fyrst og fremst ætluð til fróðleiks og skemmtunar.


 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert