Banaslys við Hítará

Einn lést þegar tvær bifreiðar skullu saman á Snæfellsnesvegi norðan við Hítará í hádeginu í dag. Var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi.

Húsbíll og jepplingur, sem komu hvor úr sinni átt, rákust saman. Sjö erlendir ferðamenn voru í bifreiðunum og var hinn látni farþegi í annarri þeirra. Þrír voru fluttir af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar og þrír með sjúkrabifreið. 

Lögreglan á Vesturlandi rannsakar tildrög slyssins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert