Harður árekstur norðan við Hítará

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna árekstrar við Hítará.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna árekstrar við Hítará. mbl.is/Árni Sæberg

Harður árekstur varð á Snæfellsnessvegi norðan við Hítará.

Í samtali við mbl.is segir lögreglan á Vesturlandi að tvær bifreiðar hafi lent í hörðum árekstri. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi og Landhelgisgæslan staðfestir að þyrlan hafi verið kölluð á slysstað. 

Lögreglan hafði ekki frekari upplýsingar um hvers kyns ökutæki var um að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert