Guðrún Sigríður Arnalds
Njáll Trausti Friðbertsson, fyrsti varaformaður fjárlaganefndar, segir nefndina ekki hafa fengið svör frá stjórn Íslandsbanka varðandi starfslokasamning Birnu Einarsdóttur fyrrverandi bankastjóra.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir formaður fjárlaganefndar sendi formlega beiðni til stjórnar bankans í byrjun júlímánaðar þess efnis að nefndin fengi upplýsingar um innihald starfslokasamningsins.
Þá sagði hún beiðnina lagða fram í krafti þess að ríkið væri hluthafi í Íslandsbanka.
Allir nefndarmenn stjórnarflokkanna í fjárlaganefnd hafa hvatt til þess að samningurinn verði birtur.