Agnar Már Másson
Slökkvilið hefur ekki þurft að slökkva gróðurelda við gosstöðvarnar í dag. Hins vegar þurfa slökkviliðsmenn sennilega að snúa aftur á morgun þar sem líklegt er að gróðureldar teygi aftur úr sér ef það fer ekki að rigna á Reykjanesskaga.
„Við náðum tökum á þessu í fyrradag og vorum í gær að slökkva í þeim blettum þar sem eldurinn fór af stað aftur,“ segir Einar Sveinn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, við mbl.is.
„Við vonuðumst eftir að veðurspáin myndi rætast og það myndi rigna, en ég held að það sé engin rigning í kortunum.“
Hann segir að slökkviliðið hafi ekki verið við gosstöðvarnar í dag en þurfi líklegast að mæta á morgun þar sem kviknað hefur aftur í bletti við Litla-Hrút.
„Við vitum af einum smábletti sem er að byrja aftur. Við þurfum sennilega að bregðast við því á morgun. Annars erum við búin að ná fullum tökum á þessu,“ segir hann.
„Það er alltaf hætta á því að þetta fari af stað aftur ef það rignir ekkert.“
Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands sagði í samtali við mbl.is í dag að spár gerðu ráð fyrir að hlýjast yrði á Suður- og Vesturlandi um helgina en búast mætti við vætu á stöku stað, ekki síður við gosstöðvarnar.