Hættusvæðið þar sem ný gosop geta myndast hefur verið stækkað í suðvestur. Þetta kemur fram í uppfærðri tilkynningu Veðurstofunnar, sem hefur uppfært hættumatskortið fyrir gosstöðvarnar við Litla-Hrút.
Skjálftagögn hafa verið yfirfarin og ný líkön keyrð til að áætla enn betur legu kvikugangsins sem myndaðist í aðdraganda gossins en í því ljósi hefur hættusvæðið verið stækkað.
Þá nær kvikugangurinn nú frá Keili í norðri undir Meradalahnjúka í suðri.
Hraunrennsli hefur einskorðast við eitt gosop síðustu daga og rennur hraun áfram í suður, en úr vestari hluta gosopsins eftir að hluti af gígbarminum brast aðfaranótt 19. júlí. Áður sást aukning í óróa á mælum Veðurstofunnar á um 5 klst tímabili sem féll svo skyndilega þegar barmurinn brast.
Sólarhringinn 17.-18. júlí mældist meðalhraunrennsli upp á 8,7 m3/s. Hraunbreiðan úr gosinu við Litla-Hrút náði yfir um 0,92km2 lands 18. júlí.