Gosmóðan lagðist yfir höfuðborgina

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvatti viðkvæma til að halda sig innandyra, ellegar …
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvatti viðkvæma til að halda sig innandyra, ellegar forðast áreynslu utanhúss. mbl.is/Árni Sæberg

Gosmóða lá yfir Reykjavík í gær og voru loftgæði verri en undanfarna daga eins og sjá má á þessari mynd sem sýnir vel þokukennt loftið yfir Landspítalanum í Fossvogi.

Lítt grillti í Esjuna sem og önnur fjöll í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvatti viðkvæma til að halda sig innandyra, ellegar forðast áreynslu utanhúss.

Mælt var gegn því að ungbörn væru látin sofa úti í vagni. Fólki með öndunarfærasjúkdóma var ráðlagt að vera með aukaskammta af lyfjum við hendina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert