Ólafur Pálsson
„Það hefði kannski átt að kjósa en það voru bara ekki komnar neinar reglur þá um biskupskosningu.“
Þetta segir Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, um þá ákvörðun sína að að framlengja ráðningartíma biskups Íslands, Sr. Agnesar M. Sigurðardóttur, um eitt ár frá 1. júlí 2022 þegar skipunartími hennar var liðinn.
„Við slítum þessu sambandi við ríkið um áramótin 2022 en trúlega hefði nú ráðuneytið átt að hjálpa okkur meira í þessu. Agnes var á vegum ráðuneytisins með forsetabréf,“ segir Drífa og bætir því við að um sé að ræða mál sem þurfi að skýra mikið betur.
Þjóðkirkjan gerði ráðningarsamning til 28 mánaða við Sr. Agnesi sama dag og forseti kirkjuþings ákvað að framlengja ráðningartímann. Ragnhildur Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Biskupsstofu, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Þjóðkirkunnar en hún er undirmaður biskups.
„Við erum búin að fara núna í gegnum tvennar vígslubiskupskosningar og þar er enginn ráðningarsamningur gerður, þá gefur kjörstjórn bara út kjörbréf og það er í raun eini ráðningarsamningurinn sem gildir. Svo er það kjaranefnd á okkar vegum sem ákvarðar launin.“