Gengið hefur verið frá kaupsamningi á milli leigufélagsins Heimstaden og Búseta vegna kaupa Búseta á 42 íbúðum leigufélagsins við Tangabryggju í Reykjavík. Viljayfirlýsing vegna kaupa á yfir 90 íbúðum til viðbótar hefur einnig verið undirrituð af framkvæmdastjórum félaganna.
Viljayfirlýsingin nær til íbúða á höfuðborgarsvæðinu en íbúðirnar sem keyptar hafa verið eru við Tangabryggju 2, 4a og 4b.
Umfang viðskiptana er um það bil tveir og hálfur milljarður króna fyrir þessar 42 íbúðir en kaupin eru fjármögnuð með láni frá fagfjárfestasjóði í rekstri Landsbréfa.
„Heimstaden vinnur nú að því að selja eignir úr eignasafni sínu og leitast eftir því að selja eignir til aðila sem leggja áherslu á húsnæðisöryggi og viðhafa langtímahugsun þegar kemur að samningum við leigjendur. Stefnt er að formlegri afhendingu eignanna 42 til Búseta fyrir árslok en um er að ræða nýlegar 2-4 herbergja íbúðir í Bryggjuhverfinu í Reykjavík,“ segir í tilkynningu.
Haft er eftir framkvæmdastjórum félaganna þar sem þeir segjast vilja tryggja öruggt húsnæði.
„Markmið Búseta er að tryggja félagsmönnum sínum aðgengi að tryggu og góðu húsnæði á hagkvæmum kjörum. Það er með ánægju sem við bjóðum leigjendur Heimstaden velkomna til Búseta. Við höfum verið að auka við framboð íbúða á vegum Búseta, bæði í formi búseturétta og á vegum Leigufélags Búseta. Kaupin á íbúðum Heimstaden styrkja enn frekar framboð íbúða hjá okkur á höfuðborgarsvæðinu. Við viljum geta boðið fjölbreytt húsnæði sem hentar ólíkum æviskeiðum fólks án þess að það þurfi að binda stórar fjárhæðir í húsnæði eða taka dýr lán,“ er haft eftir Bjarna Þór Þórólfssyni, framkvæmdastjóra Búseta.