Gömlum náðhúsum breytt í þjónusturými

Hér má sjá teikningu af fyrirhugaðri breytingu.
Hér má sjá teikningu af fyrirhugaðri breytingu.

Gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju munu fá nýtt hlutverk í framtíðinni.

Margir eldri Akureyringar og aðkomumenn muna eftir náðhúsunum, steinsnar frá Hótel KEA.

Í maí 2022 keypti fasteignafélagið Reginn af Akureyrarbæ gömlu náðhúsin, með þeim skilyrðum að gerðar yrðu endurbætur á tröppunum þar fyrir ofan. Kirkjutröppurnar yrðu rifnar og þær endursteyptar og uppfærðar með nýrri lýsingu, snjóbræðslu og nýjum granítsteini.

Fram kemur á vef Regins að samhliða þessu verkefni hafi Reginn í samstarfi við AVH skoðað framtíðarnotkun á gömlu náðhúsunum undir tröppunum. Hugmyndir um skemmtileg verslunar- og þjónusturými með möguleg tengsl við KEA hafa verið til skoðunar, en Reginn á húsnæðið sem hýsir Hótel KEA. Horft hefur verið til þess að byggja viðbyggingu sem vinni saman með umhverfinu í kring og dragi ekki úr ásýnd trappanna.

Endurbætur á kirkjutröppunum hófust í byrjun júlí og verklok eru áætluð 15. október. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka