Erlendir ferðamenn sem leitað var að í Kerlingarfjöllum í gærkvöld fundust heilir á húfi eftir miðnætti í nótt. Lögreglan á Suðurlandi kallaði út hóp björgunarsveita í Árnessýslu til þess að aðstoða við leit að gönguparinu.
Parið hringdi sjálft eftir aðstoð. Þau voru á göngu, en vissu ekki hvar þau voru og fundu ekki leið til byggða.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var ekki óskað eftir aðstoð gæslunnar við leitina. Þoka var á svæðinu og því var ekki hægt að notast við þyrlu við leitina.