Skelfileg skilaboð á útidyrahurðinni

Miðum sem þessum var komið fyrir á útidyrahurðum í Hafnarfirði.
Miðum sem þessum var komið fyrir á útidyrahurðum í Hafnarfirði. Samsett mynd

„Mér finnst þetta alveg til skammar,“ segir Steinunn Þorkelsdóttir, íbúi að Breiðvangi í Hafnarfirði, sem tók eftir óvelkomnum miða á útidyrahurðinni sinni þegar hún var á leið til vinnu í morgun.

Á miðann voru letruð eftirfarandi skilaboð: „Kynblendun útrýmir hvíta. Stöðvum dráp hvítra“. 

Þetta er alveg skelfilegt 

Í samtali við mbl.is kveðst Steinunn ekki hafa hugmynd um hver það var sem hver kom miðanum fyrir á hurðinni.

Hún veit þó til þess að sams konar miðar hafi verið hengdir upp á útidyrahurðum í nágrenninu.

„Þetta er alveg skelfilegt,“ segir Steinunn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert