Yfir 100 skjálftar mælst í hrinunni

Hrinan er 35 kílómetrum af Reykjanestá.
Hrinan er 35 kílómetrum af Reykjanestá. Kort/Veðurstofa Íslands

Yfir 100 skjálftar hafa mælst í skjálftahrinu 35 kílómetrum út af Reykjanestá. Engin merki eru um að órói fylgi hrinunni, að því er segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu.

Ein tilkynning hefur borist um að skjálftinn hafi fundist í byggð og kom sú frá Akranesi.

Stærsti skjálftinn mældist klukkan 20.29 og var um 4,5 að stærð.

Jarðskjálftahrinur á þessu svæði eru vel þekktar.

Í jarðskjálftahrinu í október árið 2022 varð þar skjálfti af stærð 4,4, að því er segir í tilkynningunni. Skjálfti af stærð 4,8 varð í júlí 2015 og skjálfti af stærð 4,7 varð í nóvember 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert