Til stendur að heimila sumarbústaðabyggðir á tveimur aðliggjandi einkalöndum innan bæjarmarka Mosfellsbæjar. Svæðið er norðan við Selvatn með aðkomu frá Nesjavallavegi samkvæmt nýjum deiliskipulagstillögum sem kynntar voru í vor.
Búið er að senda inn athugasemdir og heldur nú skipulagsfulltrúi bæjarins áfram með málið. Löndin eru á þegar skilgreindu frístundasvæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 og hefur ekki verið sótt um deiliskipulagsgerð þar fyrr en nú.
Báðar frístundabyggðirnar yrðu á Miðdalsheiði við Selvatn. Einu landinu yrði skipt upp í 10 lóðir með möguleika á 10 sumarbústöðum með heimild fyrir 130 fermetra bústað á hverri lóð.
Hin byggðin, sem er áætluð á svipaðri staðsetningu, yrði svo byggð á landi sem væri skipt upp í fimm lóðir.
Fjórar þeirra myndu bera heimild fyrir 130 fermetra bústað en ein lóðin væri með heimild fyrir allt að 200 fermetra bústað.
Báðar byggðir hafa fengið athugasemdir frá hagsmunaaðilum og er nú málið enn í vinnslu.
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar var svo samþykkt deiliskipulagstillaga um einn sumarbústað á annarri lóð á Miðdalsheiði, þar sem hús stóð fyrir og hefur nú heimild til endurbyggingar allt að 200 fermetra í samræmi við aðalskipulag. Því gætu sumarbústaðirnir orðið allt að 16 talsins á þessu svæði.
Fréttin hefur verið uppfærð.