VR hættir í viðskiptum við Íslandsbanka

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn VR hefur ákveðið að hætta viðskiptum við Íslandsbanka og ætlar nú að leita tilboða í viðskipti og þjónustu hjá öðrum fjármálafyrirtækjum. Kemur ákvörðunin í kjölfarið á brotum bankans við sölumeðferð á hlut ríkisins í Íslandsbanka sem bankinn viðurkenndi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins.

Í lok júní gaf VR út yfirlýsingu þar sem fram kom að brot bankans við sölumeðferð á eignarhlut ríkisins í bankanum væru með öllu óásættanleg og að starfsfólk ætti að bera ábyrgð frekar en að kostnaður við sektir falli á neytendur. „Orð eru ekki nóg og það dug­ar ekki að fórna banka­stjór­an­um og halda svo áfram á sömu braut. Stjórn VR mót­mæl­ir því að ein­stak­ling­ar geti gerst brot­leg­ir við lög og regl­ur en þurfi ekki að bera af því kostnaðinn held­ur séu him­in­há­ir reikn­ing­ar send­ir í formi sekta á fyr­ir­tæki, sem neyt­end­ur greiða á end­an­um,“ sagði í tilkynningunni í júní.

Í yfirlýsingu í dag segir að viðbrögð bankans og svör forsvarsmanna hans við kröfum VR séu að mati stjórnar VR ófullnægjandi, en félagið hafði kallað eftir því að stjórn bankans og það starfsfólk sem ábyrgð bar á lögbrotum myndi axla ábyrgð.

Fimm stjórnendur og regluvörður hætt

Síðan þá hafa fimm stjórnendur hjá bankanum sem komu að sölunni, auk regluvarðar, látið af störfum hjá bankanum. Það á við um Birnu Einarsdóttur, sem var bankastjóri bankans, Atla Rafn Björnsson, sem var yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar bankans, og Ásmund Tryggvason, sem var framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta. Einnig hafði Sveinbjörn Sveinbjörnsson, fyrrverandi forstöðumaður eignastýringar bankans ráðið sig til Fossa og Ingvar Arnarson látið af starfi sínu sem forstöðumaður verðbréfamiðlunar.

Á hluthafafundi bankans í síðasta mánuði gáfu einnig þrír stjórnarmenn ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Það voru þau Finn­ur Árna­son stjórn­ar­formaður, Guðrún Þor­geirs­dótt­ir, vara­formaður stjórn­ar, og Ari Daní­els­son stjórn­ar­maður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert