Rannsókn tæknideildar lögreglu á eldsupptökum brunans í iðnaðarhúsnæðinu við Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði í gær stendur yfir. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu er málið ekki rannsakað sem sakamál en það var niðurstaðan að lokinni frumathugun á vettvangi.
Eftir því sem lögregla kemst næst voru íbúar í húsnæðinu þrettán talsins. Þeir náðu allir að forða sér út úr húsinu.
Grímur Thor Thoroddsen rannsóknarlögreglumaður segir í samtali við mbl.is ómögulegt að segja til um það hvenær rannsókninni kemur til með að ljúka.
„Þetta er stór vettvangur og bilin eru mis illa farin.“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur vitni til að gefa sig fram í síma 444 1000.