Vegna bilunar er kaldavatnslaust í Fossvogi og nágrenni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum og segir að verið sé að leita að bilun að svo stöddu.
„Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið. Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að brennisteinninn í vatninu geti valdið sumum óþægindum en sé skaðlaus.
„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.“
Uppfært kl. 10.37:
Búið er að staðsetja lekann og ættu íbúar austan megin Kringlumýrarbrautar að fá aftur kalda vatnið til sín fyrir hádegi.
„Það getur tekið nokkra stund fyrir vatnið að ná fullum þrýstingi að nýju,“ segir á vef Veitna.
Uppfært kl. 11.02: