„Leiðinlegt að sjá þessa vinnu slegna út af borðinu“

Einar Eðvald Einarsson, formaður byggðarráðs Skagafjarðar segir hækkanir bitna meira …
Einar Eðvald Einarsson, formaður byggðarráðs Skagafjarðar segir hækkanir bitna meira á minni rekstraraðilum. mbl.is/Samsett mynd

Byggðaráð Skagafjarðar hefur skorað á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra að endurskoða fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir Matvælastofnunar.

„Þetta er gríðarlega mikil hækkun og hún er að ganga hlutfallslega mest yfir litla framleiðendur sem eru að reyna koma sér upp betri nýtingu og meiri framleið í sinni framleiðslu með því að selja beint frá býli,“ segir Einar Eðvald Einarsson, formaður byggðarráðs Skagafjarðar í samtali við mbl.is.

Í áskorun byggðarráðs til matvælaráðherra er einnig tekið undir með Bændasamtökum Íslands, Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, Samtökum smáframleiðenda matvæla og Beint frá býli ásamt gagnrýni bænda og framleiðenda á þessum gjaldskrárhækkunum.

„Þetta er mikil strúktúrbreyting því til dæmis sýnatökur fara allar yfir á úrvinnsluaðilann þannig það er ekki nóg að líta bara á hækkun tímagjaldsins heldur þarf að horfa á hvað er gert í þessum eftirlitsferðum, nú eiga þeir bara að borga allt,“ segir Einar.

Meiri hækkun fyrir minni rekstraraðila

Hann nefnir að sveitarfélagið, samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkið hafi stutt við aðila í svokölluðum „beint frá býli“ búskap með margvíslegum hætti. Það skjóti því skökku við að sjá þessar hækkanir sem bitni verst á litlum sláturhúsum.

„það er leiðinlegt að sjá þessa vinnu slegna út af borðinu á einni nóttu með svona gríðarlegri hækkun á eftirlitsgjöldum. Þetta er líka hækkun á eftirlitsgjöldum gagnvart stóru aðilunum, en þetta er hlutfallslega meiri hækkun fyrir minni rekstraraðila sem eru veltulitlir fyrir.“

Einar segir ágætis atvinnusköpun hafa verið af litlum sláturhúsum en einnig tryggi þetta fjölbreyttara vöruframboð fyrir neytendur. Mótmælir því sveitarfélagið þessum áformum alfarið.

800% hækkun

Eins og mbl.is hefur fjallað um þá hafa bændur sagt þessa hækkun vera ótæka ef þeir eigi að geta haldið áfram rekstri.

Í um­sögn frá Er­lendi Björns­syni, bónda á Segl­búðum, og Guðjóni Þorkels­syni, pró­fess­or og ráðgjafa, sem send var til sam­ráðsgátt­ar 31. mars seg­ir að ný gjald­skrá MAST muni marg­falda eft­ir­lits­kostnað smáfram­leiðenda og draga úr ný­sköp­un á lands­byggðinni.

Þá hækki nýja gjald­skrá­in, sam­kvæmt þeirra út­reikn­ing­um, kostnað slát­ur­húss­ins á Segl­búðum um 800% en árið 2022 hafi hann verið um 270 þúsund krón­ur en verði um 2,2 millj­ón­ir með gjald­skrár­breyt­ing­unni. Rekst­ur fyr­ir­tæk­is­ins muni því aldrei geta staðið und­ir þess­um kostnaði og neyðist þá til að hætta starf­semi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert