Móta reglur um símanotkun í grunnskólum

Skjánotkun barna hefur aukist til muna.
Skjánotkun barna hefur aukist til muna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mennta- og barnamálaráðherra hefur ákveðið að setja af stað vinnu sem miðar að því að gefa út reglur um farsímanotkun í grunnskólum landsins, en hún er óvíða eins mikil og hér á landi, að fram kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Nýjar rannsóknir bendi til þess að mikil aukning sé í skjátíma hjá börnum, sem hafi neikvæð áhrif á svefn og andlega og líkamlega heilsu þeirra. Rannsóknir hafi jafnframt sýnt að takmarkanir á notkun farsíma bæti námsárangur, sérstaklega hjá þeim sem séu með slakan námsárangur.

Verða reglurnar unnar í víðtæku samráði við foreldra og börn, sveitarfélög, skólastjórnendur, kennara og aðra hagaðila, og gert ráð fyrir að þær verði nýttar sem leiðbeinandi viðmið fyrir grunnskóla við setningu skólareglna um farsímanotkun.

Meðal annars verði tryggð fullnægjandi fræðsla um símanotkun og forvarnir til að stuðla gegn þeim mögulegu neikvæðu áhrifum sem hún getur haft í skólum.

Farsæld barna höfð að leiðarljósi

Vísað er í nýja rannsókn Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands þar sem kemur fram að næstum öll grunnskólabörn eigi farsíma. 95 prósent barna í 4. bekk eigi síma og 98 prósent í 7. bekk. Hlutfall barna sem noti netið við að leysa skólaverkefni sé þó enn lágt í yngstu bekkjum grunnskóla en það aukist með aldrinum.

„Tækninni fleygir fram og ljóst að henni fylgja ekki eingöngu kostir. Vinna þarf gegn neikvæðum áhrifum tækninnar samhliða því að nýta þau jákvæðu. Skjánotkun er mikil hérlendis og fer vaxandi. Skoðanir eru skiptar í samfélaginu og skólareglur misjafnar eða jafnvel ekki til staðar.

Við ætlum að skilgreina viðmið fyrir grunnskóla og auka fræðslu í þessum efnum til að bregðast við þessari þróun með farsæld barna að leiðarljósi, og hjálpa þeim þannig að bregðast við,“ er haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka