Íslenska óperan þarf að „sleppa takinu“

Til stendur að setja á laggirnar ríkisrekna þjóðaróperu.
Til stendur að setja á laggirnar ríkisrekna þjóðaróperu. Ljósmynd/Íslenska óperan

Klassís, félag klassískra söngvara á Íslandi, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið ítrekar stuðning sinn við áform menningar- og viðskiptaráðuneytisins um stofnun á þjóðaróperu.

Í yfirlýsingunni segir að með stofnun þjóðaróperu muni „í fyrsta sinn skapast raunverulegur starfsgrundvöllur fyrir óperusöngvara á Íslandi“.

Þurfa að sleppa takinu

Í lokaorðum yfirlýsingarinnar hvetur Klassís Íslensku óperuna til þess að taka ábyrgð á stöðunni sem upp sé komin. Margir óperuunnendur beri hlýhug til Íslensku óperunnar og að margir þeirra vonist til þess að nýja þjóðaróperan verði byggð að einhverju leyti á hennar grunni. 

„Til þess að svo megi verða þarf stjórn Íslensku óperunnar að sleppa takinu, sýna samstöðu með öllum þeim sem að faginu koma og fagna áformum sem munu efla óperustarfsemi, styrkja starfsvettvang söngvara og auðga sviðslistalífið í landinu,“ segir í lokaorðum yfirlýsingarinnar.

Yfirlýsinguna má lesa hér: 

„Klassís skorar jafnframt á stjórnvöld að sjá til þess að ekki verði dregið úr fjárframlögum til óperustarfsemi þar til þjóðaróperan tekur til starfa. Sambærilegu fé og runnið hefur til Íslensku óperunnar verði t.a.m. veitt í samkeppnissjóð um óperuflutning.

Óperulist fékk sérstakan sess í sviðslistalögunum 2019. Söngvarar og allt listafólk sem kemur að óperuflutningi, á að njóta jafnræðis á við kollega sína í öðrum sviðslistum, hvað varðar starfsvettvang og starfsskilyrði. Listforminu skal einnig vera tryggð fjármögnun til lengri tíma á sama hátt og leikhúsi og danslist. Eins skulu vera til stöðugildi á vegum ríkisins sem ráðstafað er til söngvara hvort sem þeir eru að syngja í óperukór eða einsöng.

Félagar Klassís eru 119 talsins og starfa bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Markmið félagsins er m.a. að efla starfsvettvang klassískra söngvara á Íslandi og þrýsta á um að fagleg sjónarmið séu ráðandi og faglegir starfshættir viðhafðir. Klassís telur að með stofnun þjóðaróperu verði þessum markmiðum náð fram og grundvöllur skapist til fastráðninga söngvara. Félagið lítur meðal annars til starfsumhverfis leikara hjá Þjóðleikhúsinu, hljóðfæraleikara hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og dansara hjá Íslenska dansflokknum. 

Félagsfundur Klassís lýsti vantrausti á stjórn Íslensku óperunnar og óperustjóra árið  2021 vegna stjórnunarhátta. Meðal þess sem Klassís hefur gagnrýnt er hvernig Vinafélagi Íslensku óperunnar var ýtt út úr stjórn með umdeildum breytingum á samþykktum félagsins. Þar með var girt fyrir lýðræðislega aðkomu að stjórn Íslensku óperunnar auk þess sem sögulegt aðhaldshlutverk Vinafélagsins gagnvart Íslensku óperunni var endanlega afnumið. 

Þá minnir félagið á að áform um að ríkið taki við rekstri óperu, samræmast óskum stofnenda Íslensku óperunnar um framtíð stofnunarinnar, samkvæmt 8. grein samþykkta Íslensku óperunnar frá 2013:  „Leggist starfsemi Íslensku óperunnar af einhverjum ástæðum niður skulu eignir hennar varðveittar undir stjórn þriggja manna ráðs sem skipað er af Vinafélagi Íslensku óperunnar uns komið hefur verið á fót að nýju sambærilegri eða svipaðri starfsemi, en þá má verja eignunum til styrktar henni“. Þessum samþykktum var síðar breytt með umdeildum hætti haustið 2019.

Klassís hvetur stjórn Íslensku óperunnar til að taka ábyrgð á stöðunni sem upp er komin. Fjöldi óperuunnenda og söngvara á Íslandi bera hlýjan hug til Íslensku óperunnar, sögu hennar og þess gifturíka starfs sem stofnendur unnu og vonast margir til þess að þjóðarópera verði að einhverju leyti byggð á hennar grunni. Til þess að svo megi verða þarf stjórn Íslensku óperunnar að sleppa takinu, sýna samstöðu með öllum þeim sem að faginu koma og fagna áformum sem munu efla óperustarfsemi, styrkja starfsvettvang söngvara og auðga sviðslistalífið í landinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert