Tveir sóttu um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins sem auglýst var laust til umsóknar í byrjun ágúst.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Umsækjendur eru:
Þriggja manna nefnd verður skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Hún mun starfa í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.
Heilbrigðisráðherra skipar í embættið til næstu fimm ára frá 1. desember næstkomandi.