Orkufélagið Títan lítur dagsins ljós

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, er framkvæmdastjóri Títans.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, er framkvæmdastjóri Títans. Samsett mynd

Sveitarfélagið Ölfus stofnaði í dag Orkufélagið Títan ehf., en tilgangur félagsins er að fara fyrir orkurannsóknum, orkuvinnslu og rekstri hitaveitu í þágu Ölfuss, annarra sveitarfélaga, hagsmunaaðila og rekstri tengdra mannvirkja á svæðinu. 

Eitt orkuríkasta svæði á Íslandi

Í tilkynningu sem sveitafélagið sendi frá sér í dag kemur fram að Grétar Ingi Erlendsson hafi verið kjörinn formaður stjórnar félagsins og verða meðstjórnendur hans þær Sandra Dís Hafþórsdóttir og Kristín Magnúsdóttir. Varastjórn skipa þau Hrönn Guðmundsdóttir og Gestur Þór Kristjánsson. Þá var Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, ráðinn framkvæmdastjóri með prókúru. 

„Aðgengi að orku er að verða ein helsta ógn verðmætasköpunar á Íslandi og mikilvægt að allir leggist á eitt til að hreyfa við málum. Það verður ekki við það búið að hér takmarkist verðmætasköpun af því að ekki sé nægt aðgengi að orku,“ er haft eftir Elliða Vignissyni í tilkynningunni, en sveitarfélagið Ölfus er á meðal orkuríkustu svæða á Íslandi. 

„Hver einasti dropi nýttur á höfuðborgarsvæðinu“

Þá segir nýkjörinn stjórnarformaður félagsins, Grétar Ingi Erlendsson, að með stofnun félagsins sé stefnt að því efla nýtingu orkukosta innan sveitarfélagsins með það að leiðarljósi að tryggja íbúum og fyrirtækjum aðgengi að orku sem hingað til hafi einvörðungu verið nýtt á höfuðborgarsvæðinu. Meðal annars verði horft til nýtingar á Ölkelduhálsi, Ölfusdal og við Hlíðardalsskála.  

Við höfum á seinustu árum verið of miklir áhorfendur í orkumálum og til að mynda séð sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu byggja upp stærsta jarðorkuver í heimi upp hér í Ölfusinu. Svo magnað sem það er þá nýtist þessi mikla orka sem þar er unnin ekki fyrir fyrirtæki hér á svæðinu heldur er hver einasti dropi nýttur á höfuðborgarsvæðinu auk smáræðis innan lóðar þeirra á Hellisheiði. Þessu ætlum við að breyta með því að stíga sjálf fram í þessum málum,“ er haft eftir Grétari í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert