Rennsli í Skaftá er aftur orðið það sama og fyrir Skaftárhlaup sem hófst 28. ágúst. Frá þessu greinir Veðurstofan og segir að hlaupið sé því yfirstaðið.
Tæp vika er liðin frá því hlaup hófst í ánni. Athuganir úr flugi staðfestu degi síðar að upptök þess væru í eystri Skaftárkatli.