Nafn mannsins sem lést í Eyjafjarðarsveit

Maður­inn sem fannst látinn innarlega í Eyjafirði á laugardagskvöld hét Jónas Vigfússon. Hann lætur eftir sig eiginkonu, tvær uppkomnar dætur og sjö barnabörn.

Jónas hafði verið við smalamennsku hátt upp í hlíðum Hagárdals að norðanverðu þegar viðbragðsaðilum barst beiðni um aðstoð. 

Samkvæmt tilkynningu lögreglu gekk mjög erfiðlega að komast til hans og þá var ekki hægt að notast við þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna misvinda í dalnum og mikils uppstreymis en þyrlan var komin á vettvang.

Um tildrög atviksins er ekki frekar vitað.

Þakka viðbragðsaðilum

Fréttaflutningur hefur borið með sér að Jónas hafi látist af slysförum en samkvæmt upplýsingum frá ekkju Jónasar er það ekki rétt, orsök andlátsins sé ókunn.

Fjölskylda Jónasar vill koma á framfæri innilegu þakklæti til viðbragðsaðila en verkefni björgunarliða var mjög erfitt.

Jónas var fædd­ur árið 1951, bóndi á Litla-Dal í Eyjafjarðarsveit. Hann var fyrrverandi sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit og áður í bæði Hrísey og á Kjalarnesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert