Andlát: Guðbergur Bergsson

Guðbergur Bergsson er látinn.
Guðbergur Bergsson er látinn. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Guðbergur Bergsson rithöfundur er látinn. Hann lést á heimili sínu í Mosfellsbæ í faðmi fjölskyldu sinnar á mánudagskvöld eftir skammvinn veikindi.

Guðbergur var fæddur á Ísólfsskála við Grindavík 16. október 1932 og var því tæplega 91 árs gamall. Foreldrar hans voru Jóhanna Guðleif Vilhjálmsdóttir húsmóðir og Bergur Bjarnason, smiður og sjómaður.

Guðbergur lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1955, hélt síðan til náms á Spáni og lauk prófi í spænskum fræðum, bókmenntum og listasögu frá La Universidad de Barcelona 1958.

Fráfall Guðbergs markar þáttaskil í íslenskum og evrópskum bókmenntum. Síðan fyrstu bækur hans komu út árið 1961, ljóðabókin Endurtekin orð og skáldsagan Músin sem læðist, hafa lesendur mátt hafa sig alla við í ævintýralegu sköpunarverki sem spannar óra vítt svið skáldskapar, þýðinga, fagurfræði, gagnrýni, listfræði og pistla. Með skáldsögunni Tómasi Jónssyni metsölubók (1966) markaði Guðbergur sér stöðu sem einn helsti módernisti íslenskra bókmennta og jafnframt einn helsti arftaki Halldórs Laxness, Þórbergs Þórðarsonar og Gunnars Gunnarssonar í íslenskum nútímabókmenntum.

Guðbergur var mikill dýravinur.
Guðbergur var mikill dýravinur.

Skáldsagan Svanurinn (1991) hefur verið þýdd á fjölda tungumála og ferjaði höfundarverk Guðbergs á svið mikilhæfustu rithöfunda Evrópu. Guðbergur var einnig mikilsvirtur þýðandi spænskra, portúgalskra og suður/rómans-amerískra bókmennta og með þýðingum sínum hefur hann auðgað íslenska menningu með verkum heimsbókmennta á borð við Don Kíkóta eftir Cervantes og Hundrað ára einsemd eftir Gabriel García Márquez.

Guðbergur hlaut ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir skáldskap sinn og þýðingar, meðal annars bókmenntaverðlaun dagblaðanna, bókmenntaverðlaun DV, Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Svaninn og einnig fyrir skáldævisögu sína Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar (1997) og Eins og steinn sem hafið fágar (1998). Árið 2004 hlaut hann Norrænu verðlaun sænsku bókmenntaakademíunnar og árið 2006 var hann tilnefndur til hinna virtu ítölsku Noninu-verðlauna fyrir Svaninn. Hann var einnig sæmdur Afreksorðu Spánarkonungs og riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Árið 2013 var Guðbergur sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Sama ár var Guðbergsstofa opnuð í Kviku, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur. Guðbergur var heiðursborgari Grindavíkur frá árinu 2004.

Búið er að framleiða tvær kvikmyndir byggðar á verkum Guðbergs. Svanurinn sem var frumsýnd árið 2018 og Missir sem verður frumsýnd nú í haust.

Eftirlifandi sambýlismaður Guðbergs er Guðni Þorbjörnsson, flugmaður og framkvæmdastjóri ARTPRO ehf. Þeir hafa í rúman áratug búið í Mosfellsbæ og Berlín, auk þess að eiga aðsetur í Reykjavík, Grindavík og Madrid. Saman eiga þeir Bengal-kettina Pútín og Picasso. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert