Eldur kom upp í rafhlaupahjóli, sem var í geymslu við heimahús í Kópavogi, á sjötta tímanum í kvöld. Rafhlaupahjólið var í hleðslu þegar eldurinn kom upp.
Tveir dælubílar frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á staðinn, en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu skapaðist ekki mikil hætta. Reykræsta þurfti geymsluna áður en slökkvistarfi lauk.