Ölgerðin lýsir miklum vonbrigðum með þær upplýsingar sem fram komu í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna ólögmæts samráðs skipafélaganna Eimskipa og Samskipa. Ölgerðin skoðar möguleikann á að sækja skaðabætur vegna málsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þar segir jafnframt, að í gögnum Samkeppniseftirlitsins komi m.a. fram að þegar Ölgerðin gerði athugasemdir við verðhækkanir Eimskipa vegna flutningsþjónustu fyrir fyrirtækið árið 2009 og fór í framhaldinu í útboð um flutningana, hafi fyrirtækin tvö ekki aðeins haft samráð um málið, heldur hafi verið lagt fram sýndartilboð og verðið síðan hækkað enn frekar.
„Þær upplýsingar sem fram komu í rannsókn Samkeppniseftirlitsins eru reiðarslag fyrir íslenska neytendur, svik við okkur sem einn stærsta viðskiptavin Eimskipa á þessum tíma, svik við viðskiptavini okkar og afhjúpar viðskiptahætti sem eru okkur algjörlega óskiljanlegir,“ er haft eftir Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar, í tilkynningunni.
„Það er deginum ljósara að samráð skipafélaganna hefur valdið okkur og neytendum verulegum skaða og stórfelldu fjárhagslegu tjóni og við erum að skoða þann möguleika að sækja skaðabætur í ljósi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins,“ segir hann enn fremur.