Funda með Erni eftir helgi

Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitastjórnar Norðurþings.
Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitastjórnar Norðurþings.

Fulltrúar Norðurþings og stéttarfélagsins Framsýnar munu funda með fulltrúum flugfélagsins Ernis eftir helgi til að ræða framtíð áætlunarflugs til Húsavíkur.

Eins og fram kom í Morgunblaðinu í dag getur svo farið að flugfélagið Ernir hætti áætlunarflugi milli Húsavíkur og Reykjavíkur um næstu mánaðarmót en flugfélagið hefur haldið úti flugi á milli staðanna frá árinu 2012. 

Í tilkynningu sem Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings. hefur sent segir:

„Byggðarráð og sveitarstjórn Norðurþings hefur reglulega fjallað um málefni Húsavíkurflugvallar og áætlunarflugs til Húsavíkur. Húsavíkurstofa og stéttarfélagið Framsýn sömuleiðis. Það er mikilvægt að halda uppi reglulegu áætlunarflugi til Húsavíkur fyrir heimafólk og atvinnulíf. Það ríkir fákeppni í innanlandsflugi og eru leiðir innanlands styrktar með ríkisframlagi. Það gildir ekki um Húsavík.“

Stór verkefni og uppbygging

Í tilkynningunni segir að fram undan séu stór verkefni í Þingeyjarsýslu eins og uppbygging í landeldi á fiski, Grænna iðngarða á Bakka, tvöföldun Þeistareykjavirkjunar og í ferðaþjónustu.

„Reglulegt áætlunarflug og greið loftleið milli höfuðborgarsvæðisins og Húsavíkur er ein af undirstöðum þess að vel takist til. Fulltrúar Norðurþings og stéttarfélagsins Framsýnar eiga fund með fulltrúum flugfélagsins Ernis næstkomandi mánudag vegna málsins.

Byggðarráð Norðurþings hefur komið þessum sjónarmiðum á framfæri við stjórn flugfélagsins Ernis, Isavia sem og stjórnvöld. Mikilvægi flugleiðarinnar til Húsavíkur og Húsavíkurflugvallar ætti að vera öllum ljóst sem hlekkur í frekari uppbygging og vexti svæðisins. Til að svo megi vera þarf aðkomu ríkisvaldsins rétt eins og á öðrum flugleiðum.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert