Saltdreifaramálið á borð Hæstaréttar

Frá aðalmeðferð í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars.
Frá aðalmeðferð í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hæstiréttur hefur samþykkt að taka til meðferðar mál tveggja manna sem hlutu þunga dóma í saltdreifaramálinu svokallaða sem er eitt stærsta fíkniefnamál í sögu landsins. Annar þeirra telur að dómur Landsréttar í máli hans sé rangur að formi til en hinn maðurinn segir að málsmeðferð fyrir Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant. 

Þá gera báðir mennirnir athugasemdir við notkun á svokölluðum EncroChat-gögnum, sem er samskiptaforrit sem er mikið notað í undirheimunum, sem sakfelling þeirra hafi m.a. verið reist á.

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Jón Pétur

Mennirnir, Guðlaugur Agnar Guðmundsson og Halldór Margeir Ólafsson, voru ásamt öðrum ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi með því að hafa staðið saman að innflutningi á saltdreifara sem í voru faldir 53 lítrar af amfetamínvökva hingað til lands frá Hollandi. Þetta gerðu þeir í félagi með tveimur óþekktum erlendum aðilum, móttekið tækið og fíkniefnin og haft í vörslum sínum á nánar tilgreindri jörð og í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila fjarlægt amfetamínvökvann úr saltdreifaranum og framleitt allt að 117,5 kg af amfetamíni í sölu- og dreifingarskyni.

Þá var Halldóri Margeir ásamt öðrum meðákærðu gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulögð brotastarfsemi með því að hafa staðið saman að kannabisræktun í útihúsi á nánar tilgreindri jörð.

Dómar mildaðir í Landsrétti

Guðlaugur Agnar var sakfelldur í héraðsdómi og dæmdur í 10 ára fangelsi en með dómi Landsréttar var refsing hans milduð í 8 ára fangelsi. Halldór Margeir var sakfelldur og dæmdur í 12 ára fangelsi í héraðsdómi en Landsréttur mildaði refsingu hans í 10 ára fangelsi.

Í dómi Landsréttar kom fram að sannað væri að þeir ásamt einum meðákærðu hefðu sammælst um stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi við óþekkta erlenda aðila staðið saman að innflutningi saltdreifara til landsins þar sem falinn var amfetamínvökvi.

Fram kom í dómi Landsréttar að um þaulskipulagt fíkniefnalagabrot hefði verið að ræða sem framið hefði verið í ávinningsskyni. Þótti sýnt að Guðlaugur og Halldór hefðu vitandi vits tekið ákvörðun um þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi.

Guðlaugur Agnar byggir á því að dómur Landsréttar sé rangur að formi til. Vísar hann meðal annars til þess að Landsréttur hafi ranglega talið að krafa leyfisbeiðanda um synjun upptöku sem fjallað er um í héraðsdómi hafi fyrst komið fram í greinargerð til Landsréttar. Þá vísar hann til þess að við útgáfu ákæru hafi rannsókn lögreglu hvergi nærri verið lokið.

Einnig byggir Guðlaugur á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til. Vísar hann einkum til þess að niðurstaða Landsréttar byggist á sönnunarmati sem standist ekki þær kröfur sem gera verði í sakamálum meðal annars um milliliðalausa sönnunarfærslu fyrir dómi.

Verði að taka afstöðu til EncroChat-gagna

Jafnframt þurfi Hæstiréttur að taka afstöðu til þess hvort svokölluð EncroChat-gögn verði lögð til grundvallar sakfellingu leyfisbeiðanda. Loks hafi Landsréttur brugðist skyldu sinni til að skoða hvort leyfisbeiðandi og meðákærðu hafi verið hlutdeildarmenn í broti.

Halldór Margeir byggir á því að áfrýjun varði atriði sem hafi verulega almenna þýðingu sem mikilvægt sé að fá úrlausn Hæstaréttar um. Byggir hann á því að ástæða sé til að ætla að málsmeðferð í Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant og dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni. Dómurinn sé að mestu órökstuddur og aðeins að takmörkuðu leyti tekin rökstudd afstaða til varna hans.

Þá gerir hann athugasemdir við notkun EncroChat-gagna sem sakfelling hans hafi verið reist á. Hann byggir á því að gögnin séu ónothæf sem sönnunargögn í sakamáli enda liggi ekkert fyrir um uppruna þeirra, vörslur, hvernig öryggi þeirra hafi verið tryggt og þeim miðlað. Loks gerir hann athugasemdir við rannsókn lögreglu á símum og skort á greiningu hennar á fjármálum leyfisbeiðanda.

Dómsúrlausn um öflun og meðferð gagna kann að hafa verulega almenna þýðingu

Hæstiréttur segir í niðurstöðu sinni að niðurstaða Landsréttar um sakfellingu mannanna og um önnur atriði að því leyti sem hún byggir á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar verði ekki endurskoðuð fyrir Hæstarétti.

„Að virtum gögnum málsins verður hins vegar að telja að dómsúrlausn um öflun og meðferð gagna við rannsókn máls, sönnunarfærslu svo og heimfærslu til refsiákvæða kunni að hafa verulega almenna þýðingu í skilningi 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt,“ segir á vef Hæstaréttar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka