Lýsa eindreginni andstöðu við áform ráðherra

Skorar félagið á ráðherra að falla frá áformunum.
Skorar félagið á ráðherra að falla frá áformunum. Samsett mynd

Kennarafélag Menntaskólans á Akureyri lýsir yfir eindreginni afstöðu við áform Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um að sameina Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann.

Skorar félagið á ráðherra að falla frá áformunum.

Þetta kemur fram í ályktun félagsins.

Unnin án aðkomu nemenda

„Skýrsla stýrihóps mennta- og barnamálaráðuneytis var unnin án aðkomu almenns starfsfólks og nemenda skólanna sem um ræðir, þrátt fyrir fögur fyrirheit um samráð og samvinnu. Fjölmargar þversagnir og rangfærslur eru í skýrslunni. Hún leiðir í ljós undirliggjandi ástæðu þessara sameiningaráforma, sem er niðurskurður.

Meðal þess sem slíkar aðgerðir byggja á er fækkun sálfræðinga, námsráðgjafa og kennara. Fækkun starfsfólks og stækkun nemendahópa samrýmist engan veginn áformum um aukinn stuðning við nemendur í sameinuðum skóla,“ segir í ályktuninni.

Hvor með sína sérstöðu

Þar kemur einnig fram að MA og VMA séu framúrskarandi skólar, hvor með sína sérstöðu, sögu og menningu.

„Þeir hafa sett svip sinn á nærsamfélagið um langa tíð og hafa þrifist vel hvor í nábýli við annan undanfarin 40 ár. Skólarnir hafa átt í farsælu samstarfi og vilji er hjá kennarafélagi MA að efla það enn frekar.“

Niðurskurðurinn í framhaldsskólakerfinu sé nú þegar of mikill en stutt sé síðan þriggja ára kerfið var tekið upp með tilheyrandi sparnaði og álagi á nemendur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert