Lýsa eftir ökumanni sem ók á kú

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Akureyri lýsir eftir ökumanni sem ók bifreið sinni af vettvangi eftir að hafa ekið á kú í Hörgárdal við Jónasarlund á Þjóðvegi 1 rétt eftir klukkan hálf fjögur í dag.

Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir vitnum að atvikinu. 

Bifreiðin sem um ræðir er hvít að lit og var á suðurleið. Ekki liggur fyrir frekari lýsing á bifreiðinni.

Ökumaður bifreiðarinnar er hvattur til að gefa sig fram eða setja sig í samband við lögregluna á Norðurlandi eystra í gegnum Neyðarlínuna, 112,“ segir í færslu lögreglunnar.  

Þá eru þeir sem telja sig hafa upplýsingar um ákeyrsluna, bifreiðina eða ökumanninn beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri með sama hætti.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert