Þann 1. september voru samtals 658 börn, tólf mánaða og eldri á biðlista eftir leikskólaplássi í borgarreknum leikskólum. Til viðbótar bíða 67 börn eftir flutningi úr sjálfstætt starfandi leikskólum í Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Áætlað er að um 180 til 200 börn tólf mánaða og eldri frá 1. september séu ekki með dagvistun í Reykjavík. Eru það að stórum hluta eldri börn sem eru nýkomin á biðlista eftir leikskóla í Reykjavík.
Meðal þeirra barna sem eru á biðlistanum eru um 120 börn sem eiga eftir að fá úthlutað plássi hjá sjálfsstætt starfandi leikskóla í borginni.
Börn sem eru að fara að hefja vistun í sjálfstætt starfandi leikskólum en eru á biðlista eftir borgarreknum leikskólum detta ekki út af biðlistanum fyrr en vistun hefst. Þá eru í dag 375 í vist hjá dagforeldrum, og flest þeirra eru á biðlista eftir leikskólaplássi.
Í tilkynningunni segir að það sé alltaf ákveðin keðjuverkun í vistunarmál barna á leikskólaaldri en þegar lítið pláss bjóðist í borgarreknum leikskóla losni gjanan pláss á móti hjá sjálfstætt starfandi skólum og hjá dagforeldrum.
Þá sé mikil hreyfing á listum þegar fjölskyldur flytja á milli bæjarfélaga. Þá muni bætast við pláss hjá borgarreknum jafnt sem sjálfstætt starfandi skólum þegar viðgerðum og endurbótum á húsnæði lýkur og þegar nýtt skólahúsnæði er opnað.
Einnig er vakin athygli á því að árgangur 2021 sé sérlega stór árgangur, aðeins 2009 árgangurinn sé stærri. Á móti sé 2017 árgangurinn, sem hóf skólagöngu í 1. bekk í haust, minnsti árgangurinn í grunnskólum borgarinnar.
Stærðarmunur árganganna sem voru að fara í skóla og þeirra sem eru að koma inn er tæplega 300 börn.